201695
Á lager

Museum Reserva Magnum

Korktappi
  Korktappi  
Má geyma
  Má geyma  
201695
Á lager

Museum Reserva Magnum

Vörulýsing

 Museum Reserva kemur af mjög gömlum vínvið eða yfir 70 ára gömlum. Cigales er tiltölulega óþekkt víngerðarsvæði á hásléttunni norð-vestur af Madrid, eiginlega rétt norður af öllu þekktara víngerðarsvæði, Ribera del Duero. Það bar lengi lítið á Cigales, þarna voru fyrst og fremst mjög litlir framleiðendur sem seldu vín sín í nágrenninu.

Þetta breyttist fyrir nokkrum árum þegar vínhúsið Baron de Ley í Rioja komst að þeirri niðurstöðu að þarna væru kjöraðstæður til fjárfestinga utan Rioja. Það sem ekki síst réði þessu vali Baron de Ley var aldur vínviðsins á ekrunum. Alls hefur vínhúsið keypt þarna tæplega 200 hektara af ekrum, þar sem vínviðurinn er eldri en sextíu ára. Finca Museum er nú langstærsti og nútímalegasti framleiðandi Cigales og vínin eru hrikalega flott. ( texti frá www.vinotek.is ).

Það er þrúgan Tinta del País sem er í raun Tempranillo nema með þykkara skinni. Eins og nafnið gefur til kynna er víngerðin einnig safn, með skúlptúrum og málverkum frá 17. öld. Djúp rúbínrautt að lit, svolítil rist og kryddjurtir í nef ásamt vott af lakkrís, þroskuð rauð vilt ber, balsamic og eik. Ljúffengur, snúinn og flókinn í kröftugu bragði, vel póleruð tannín, langt of ljúffengt eftirbragð. Vínið er látið þroskast í 22 mánuði á franskri eik og 12 mánuði á flösku áður en það fer á markað.

Spánn
Spánn
2018
Finca Museum

RZ Specification Groups

Árgangur

2018

Magn

150cl

Styrkur

14.5%

Bragð

Kröftugt

Sætleiki

Þurrt

Land

Hérað/Svæði

Framleiðandi

Vefsíða