Nýtt
201885
Á lager

Quinta Da Fonte Souto, Vinha Do Souto

Sjálfbært
  Sjálfbært  
Nýtt
201885
Á lager

Quinta Da Fonte Souto, Vinha Do Souto

Vörulýsing

Vínhúsið Quinta Da Fonte Souto er í eigu hinnar frægu Symington fjölskyldu sem er með höfuðstöðvar sínar í Douro dalnum og borginni Porto – Vila Nova de Gaia í norðurhluta Portúgal. Þau eiga 28 vínbúgarða og mörg heimsþekkt portvínshús eins og t.d. Graham´s, Cockburn´s, Dow´s og Warre´s. Einnig framleiða þau mögnuð léttvín í Douro sem koma frá nokkrum Quinta´s í eigu fjölskyldunar á Douro Superior svæðinu. Frægast þeirra er án efa Chryseia P+S frá Quinta de Roriz sem er sameign Symington og hinnar frönsku Prats fjölskyldu.

Sumarið 2017 keypti Symington sitt fyrsta vínræktarsvæði utan Douro, 207 hektarar landareign í Alentejo sem er mun sunnar í Portúgal. Eignin er í hlíðum São Mamede fjallana í Portalegre í norð-austurhluta Alentejo nálægt landamærum Spánar. Eignin er um 500 metrum yfir sjávarmáli og því bæði kaldara og rakara enn á Alentejo sléttunni, sem er að jafnaði bæði þurrt og heitt. Jarðvegurinn granít grýttur og því snauðari enn víðast annarstaðar. Í dag eru rúmlega 40 hektarar nýttir undir vínrækt og um 100 hektarar eignarinnar umlykjandi vínræktina er skóglendi, kork og kastaníu tré.  

Flaggskip vín eignarinnar, nefnt eftir fallegum kastaníulundum (Soutos), sem liggja nálægt víngörðunum sem þrúgurnar eru fengnar úr. Lægri þróttur af þessum vínvið og lítil uppskera sem leiðir til þéttari, einbeittari og vel uppbyggðu víni sem endurspegla þann einstaka ferskleika sem heiðin veitir.

Dimmrautt að lit, ilmur skóglendis, fullt af kryddi, negull, hvítur pipar sem og svört kirsuber, te, tóbak ásamt eikarkeim. Þétt og kraftmikið í munni, vel mótuð tannín og fáguð sýra, vín sem þarf að föntra við og umhella. 70% af víninu er látið þroskast í nýjum frönskum eikartunnum og hin 30% í annars árs tunnum. Þrúgur: Syrah 55% og Alicante Bouschet 45%.

Portúgal
Portúgal
Quinta Da Fonte Souto

RZ Specification Groups

Árgangur

2018

Magn

75cl

Styrkur

14.5%

Bragð

Kröftugt

Sætleiki

Þurrt

Hérað/Svæði