Pascal Jolivet er eitt af stóru nöfnunum í franska vínheiminum þó að þorpið hans Sancerre sé ekki stórt. Á hæðunum í kringum Sancerre og nágrannaþorpið Pouilly kemst þrúgan Sauvignon Blanc stundum hvað næst fullkomnum, ekki síst þegar meistarar eins og Jolivet eru við stjórnvölinn Vínviðurinn er ræktaður á þeim þremur tegundum jarðvegs sem er að finna á svæðinu.
Líkt og önnur vín Jolivets einkennist stíll þeirra af fágun og fínleika auk fullkomins jafnvægis. Sancerre-vín eru yfirleitt ferskari og fínlegri en Pouilly-Fumé þyngri og bragðmeiri. Best 1-3 ára en geta elst fantavel.