205036
Fá eintök eftir

Graham´s Tawny 20 ára, 4,5 lítra

205036
Fá eintök eftir

Graham´s Tawny 20 ára, 4,5 lítra

Vörulýsing

Eftir því sem vínið er geymt lengur á tunnu breytir það um lit, rauði liturinn tekur á sig brúna tóna og ávöxturinn víkur fyrir hnetum og möndlum. Þessi portvín eru kölluð Tawny með vísun í litarhátt þeirra. Skilyrði fyrir því að portvín megi skilgreina sem Tawny er að það hafi einungis verið látið þroskast á eikartunnum. Tawny portvín eru uppáhald Portúgalana sjálfra, elegant og þægilega kryddað upplagt með dessertum og kökum með hnetum og marsipani. 

Rafbrúnn með gylltum "tawny" lit, framúrskarandi í ilmi af hnetum og karmelu ásamt bragð af yndislegum þroskuðum kirsuberjum, ávaxtaköku, toffí, mjólkursúkkulaði og vott af appelsínuberki, ríkulegt í bragði, seiðandi sætt og mjúkt, frábært jafnvægi í löngu og fínlegu eftirbragði.

Douro-dalurinn í norðurhluta Portúgal er með fegurstu víngerðarhéruðum heims. Fljótið Douro hlykkjast um dalinn á lokasprett sínum að Atlantshafi og í bröttum hlíðunum berst vínviðurinn í grýttum jarðveginum á manngerðum syllum. Douro er auðvitað þekktast fyrir að vera hérað hinna styrktu vína, portvínanna, frægustu vína Portúgal.

Portúgal
Portúgal
Graham's

RZ Specification Groups

Styrkur

20%

Bragð

Kröftugt

Sætleiki

Sætt

Hérað/Svæði

Framleiðandi

Vefsíða

Vörulýsing