RZ Specification Groups
Árgangur
2018
Magn
75cl
Styrkur
8%
Bragð
Eftirréttarvín
Sætleiki
Sætt
Land
Hérað/Svæði
Framleiðandi
Vefsíða
Hentar vel með
Vörulýsing
Bassermann-Jordan var stofnað árið 1718 og hefur verið í eigu sömu fjölskyldu allt til ársins 2002, þá var það keypt af Achim Niederberger. Staðsett í bænum Deidesheim og 50 hektara af víngörðum á flestum þekktum svæðum eins og Deidesheimer Kieselberg, Forster Ungeheuer og Forster Jesuitengarten og Forster Pechstein.
Frá aldarmótum hefur vistfræðileg og lífeld ræktun ( Biodynamic ) verið stunduð, en það hefur aðeins nýlega sem vottunin hefur birst á flöskunum. Á flöskumiðanum er mynd af svokallaðri „bacchans“ (latína), áhanganda vínguðsins Bakkusar sem heldur á blómvendi í annarri hendi og vínglasi í hinni. Myndin sýnir hana hylla brjóstmynd af keisaranum Próbusi, en brjóstmyndin stendur á skreyttum stalli með áletruninni PROBUS IMP (Próbus keisari). Í bakgrunninum má sjá vínekrur Palatíum og Rínardalsins. Rínardalurinn var á sínum tíma hluti Rómarveldis og var Próbus ábyrgur fyrir útbreiðslu vínræktarmenningu Rómverja um þau héruð Evrópu þar sem Rómverjar réðu ríkjum. Flöskumiðinn er virðingarvottur til Próbusar fyrir framlag hans til vínmenningar og þróunar vínræktar.
Rieslaner er kross af Riesling og Silvaner og vegna náttúrlega hátt sýrustig hentar þessi þrúga sérstaklega vel í framleiðslu á sætvínum. Sérleg handtýnt vínber eru valin í þetta vín og mjög fínleg pressun. Í nefi ilmur af ylliblómum, ferskju og öðrum framandi ávöxtum eins og ananas. Umfangsmikil sæta í bragði sem er fullkomlega fönguð með fágaðri sýru, fínlegt, ferskt og mjög langt eftirbragð. Prófið ekki bara með eftirréttum heldur er þetta vín frábært með ostum, bökum og sem fordrykkur. RS 135 g/l.