RZ Specification Groups
Árgangur
2019
Magn
75cl
Styrkur
13%
Bragð
Meðalfyllt
Sætleiki
Millisætt
Land
Hérað/Svæði
Framleiðandi
Vefsíða
Vörulýsing
Art de Vivre er nýung frá Gérard Bertrand þar sem hann hyllir Miðjarðarhafslífið, óspillta náttúru og listamenn þess og um leið að fagna 2000 ára vínræktarsögu, siðmenningu og lifandi arfleið fágætra fegurðar héraðsins. Og svo til að minna en á arfleiðina þá kemur vínið í flösku úr leir í anda amfóranna sem notaðar voru við upphaf víngerðarinnar á þessu svæði.
Þetta hvítvín kemur úr þrúgunni Clairette sem er með elstu þekktu vínþrúgum Frakklands, hún hefur verið ræktuð að minnsta kosti frá miðöldum. Vínræktin er enn eldri á ekrunum í Clairette du Languedoc, á sér um tvö þúsund ára sögu. Clairette er þrúga sem að við heyrum ekki oft nefnda, hún er hins vegar mjög útbreidd í suðurhluta Frakklands í héruðunum Rhone, Provence og Languedoc, hér kemur hún frá sveitafélaginu Adissan í Hérault.
Vínið er ljósgult og nefið mjög ferskt og arómatískt, niðursoðnar ferskjur og perur, blóm og ristaðar möndlur, þykkt með björtum og sætum ávexti, myndi líklega flokkast sem „off dry“ en líka ferskri og hressilegri sýru, óeikað vín. RS 12g/L