203037
Á lager

Yellow Tail Rosé 75 CL

Léttgler
  Léttgler  
203037
Á lager

Yellow Tail Rosé 75 CL

Vörulýsing

Casella-fjölskyldan flutti frá Sikiley til Ástralíu um miðbik síðustu aldar og hélt þar áfram sömu iðju og hún hafði stundað í heimalandinu, þ.e. vínrækt. Á síðustu áratugum hefur fjölskyldan byggt upp eitthvert helsta vínfyrirtæki Ástralíu fyrir tilstuðlan vína sem seld eru undir nafninu Yellow Tail. Það er talið eitt sterkasta vínvörumerki (brand) Ástralíu og þriðja öflugasta vínvörumerki í heimi. Auðvitað má rekja þennan árangur til vel heppnaðrar markaðssetningar í bland við vín sem nær að höfða til mjög breiðs hóps og er á góðu verði. Í seinni tíð hefur Casella-fjölskyldan (sem enn á fyrirtækið) verið að feta sig áfram í framleiðslu á vínum í hæstu gæðaflokkum.

Yellow Tail Rosé er líflegt og ferskt ástralskt rósavín sem hentar jafnt í notalegar samverustundir sem með mat. Vínið er fallega ljósbleikt á litinn og ilmar af ferskum jarðarberjum, hunangsmelónu, hindberjum og mildum blómatónum. Á bragðið er það stökkt og ávaxtaríkt með safaríkum keim af jarðarberjum og kirsuberjum sem endar í hreinum og frískandi eftirbragði.

Berið vínið fram vel kælt við 8–10°C. Það passar einstaklega vel með grilluðum kjúklingi, fiski, ferskum salötum, léttum pastaréttum eða sem svalandi fordrykkur á sólríkum degi.

Ástralía
Ástralía
Yellow Tail

RZ Specification Groups

Magn

75cl

Styrkur

11%

Framleiðandi

Vefsíða

Léttgler
  Léttgler