RZ Specification Groups
Árgangur
2020
Magn
75cl
Styrkur
13.5%
Bragð
Meðalfyllt
Sætleiki
Þurrt
Land
Hérað/Svæði
Framleiðandi
Vefsíða
Hentar vel með
Vörulýsing
Casella-fjölskyldan flutti frá Sikiley til Ástralíu um miðbik síðustu aldar og hélt þar áfram sömu iðju og hún hafði stundað í heimalandinu, þ.e. vínrækt. Á síðustu áratugum hefur fjölskyldan byggt upp eitthvert helsta vínfyrirtæki Ástralíu fyrir tilstuðlan vína sem seld eru undir nafninu Yellow Tail. Það er talið eitt sterkasta vínvörumerki (brand) Ástralíu og þriðja öflugasta vínvörumerki í heimi. Auðvitað má rekja þennan árangur til vel heppnaðrar markaðssetningar í bland við vín sem nær að höfða til mjög breiðs hóps og er á góðu verði. Í seinni tíð hefur Casella-fjölskyldan (sem enn á fyrirtækið) verið að feta sig áfram í framleiðslu á vínum í hæstu gæðaflokkum.
Rúbínrautt að lit, silkimjúk og þétt meðalfylling, sætuvottur af dökkum plómum, brómber, trönuber og kirsuber ásamt mintu og barkarkryddi, þétt tannín og fersk sýra. Vegan vín.