Argentínska vínhúsið Trivento í Mendoza framleiðir mörg góð vín í mismunandi verðflokkum. Reserve er eins konar millilína sem ávallt skilar góðum hlutföllum verðs og gæða. Hér er rauðvínsþrúgan Malbec gert að hvítvíni, þrúgurnar eru léttpressaðar til að fá fram rauðan ávaxtailm á sama tíma að halda í hvítvínslit. Vínið er gerjað í stáltönkum.
Þurrt og ferskt, nánast glært að lit, ilmur af kirsuberjum, hindberjum og keim af grænum eplum, athyglisvert vín.