Trivento er eitt af vínhúsunum í eigu Concha y Toro-fjölskyldunnar frá Chile en það var stofnað árið 1997 í þeim tilgangi að nýta hina stórkostlegu aðstæður til víngerðar sem er að finna í Argentínu “hinum megin” við Andesfjöllin. Vínin frá Trivento hafa reynst einstaklega traust og hlutfall verðs og gæða með því besta sem maður rekst á.
Vínið er með dökkrúbínrauðan lit og dökka ávexti, sólber, kirsuber, bláberjasulta ásamt myntu, lyng og kryddjurtum, vanillurík eik. Nokkuð kröftug mjúk meðalfylling þar sem bætist við súkkulaði og kaffitónar í löngu eftirbragði. Nokkuð öflugt steikarvín fyrir peninginn. Vínið fær 6 mánaða eikarþroskun úr franskri eik ásamt 6 mánuði á flösku.