Þetta vín kemur frá Monterey, nánar tiltekið nokkuð svölu svæði nærri Kyrrahafinu sem heitir Santa Lucia Highlands og frá víngarðinum Sleepy Hallow sem hefur meiri en aðrir víngarðar hjalpað til að koma víngerðarsvæðinu á kortið sem framúrskarandi vínræktarsvæði.
Múrsteinsrautt að lit, ánægjulegt í ilmi af svörtum sultuðum kirsuberjum, kakó, þurrkuð blóm, vanila og múskat sameinast með brögðum af hindberjum og plómu í fínlegu og mjúku bragði, flauelsmjúk tannín og frískleg sýra. Vínið fær 10 mánaða þroskun í frönskum eikartunnum.