Pascal Jolivet er eitt af stóru nöfnunum í franska vínheiminum þó að þorpið hans Sancerre sé ekki stórt. Á hæðunum í kringum Sancerre og nágrannaþorpið Pouilly kemst þrúgan Sauvignon Blanc stundum hvað næst fullkomnum, ekki síst þegar meistarar eins og Jolivet eru við stjórnvölinn.
Hér reynir hann við rauðvínsþrúguna Pinot Noir með prýðisgóðum árangri. Þurrt vín með ferskri sýru, mild tannín, rauðir berjaávextir, óeikað, lúmskt, smá kryddað, nútímalegt og flott vín.