RZ Specification Groups
Árgangur
2022
Magn
75cl
Styrkur
13.5%
Bragð
Létt
Sætleiki
Þurrt
Land
Hérað/Svæði
Framleiðandi
Vefsíða
Vörulýsing
Vínhúsið Quinta Da Fonte Souto er í eigu hinnar frægu Symington fjölskyldu sem er með höfuðstöðvar sínar í Douro dalnum og borginni Porto – Vila Nova de Gaia í norðurhluta Portúgal.
Þau eiga 28 vínbúgarða og mörg heimsþekkt portvínshús eins og t.d. Graham´s, Cockburn´s, Dow´s og Warre´s. Einnig framleiða þau mögnuð léttvín í Douro sem koma frá nokkrum Quinta´s í eigu fjölskyldunar á Douro Superior svæðinu. Frægast þeirra er án efa Chryseia P+S frá Quinta de Roriz sem er sameign Symington og hinnar frönsku Prats fjölskyldu.
Sumarið 2017 keypti Symington sitt fyrsta vínræktarsvæði utan Douro, 207 hektarar landareign í Alentejo sem er mun sunnar í Portúgal. Eignin er í hlíðum São Mamede fjallana í Portalegre í norð-austurhluta Alentejo nálægt landamærum Spánar. Eignin er um 500 metrum yfir sjávarmáli og því bæði kaldara og rakara enn á Alentejo sléttunni, sem er að jafnaði bæði þurrt og heitt. Jarðvegurinn granít grýttur og því snauðari enn víðast annarstaðar. Í dag eru rúmlega 40 hektarar nýttir undir vínrækt og um 100 hektarar eignarinnar umlykjandi vínræktina er skóglendi, kork og kastaníu tré.
Florão vínin eru aðgengilegasti vínstílinn frá Fonte Souto búi sem ætlað er að drekka ungt. Vínið er ferskt og árómatískt í anga og bragði, unnið úr þrúgunum Arinto 80% og Verdelho 20%. Blómlegt í nefi, ananas, mangó og sítrus, lífleg sýra í bragði, þurrt vín í flottu jafnvægi, óeikað.