202483
Á lager
Petit Cernin Blanc 75 CL
5.998 kr
Korktappi
202483
Á lager
Petit Cernin Blanc 75 CL
5.998 kr
Vörulýsing
Château de Saint-Cernin
Róbert Wessman hefur lengi haft brennandi áhuga á gæða vínum og víngerð. Hann leitaði í um fimmtán ár að heppilegum stað til að hefja víngerð og fyrir valinu varð Château de Saint-Cernin. Château de Saint-Cernin er kastali frá 12. öld í Bergerac héraði í Frakklandi. Þar hefur vínrækt verið stunduð öldum saman á einstökum ræktarskikum.
Róbert Wessman heillaðist af sögu og vínmenningu Bergerac héraðsins og því varð Château de Saint-Cernin fyrir valinu. Hann lagði upp með skýra sýn og mikla trú á vaxtarmöguleikum Château de Saint-Cernin. Hann og meiðeigandi hans, Ksenia Wessman, bjuggu til metnaðarfulla viðskiptaáætlun og ákváðu aðendurlífga og betrumbæta forna víngerðararfleifð setursins.
Þróun og vöxtur Château de Saint-Cernin heldur áfram á sama tíma og mikill metnaður er lagður í að framleiða vín á heimsmælikvarða frá sérvöldum frönskum landsvæðum, vínáhugamönnum til ánægju.
Við fylgjum framtíðarsýn okkar og treystum á sama tíma á sérþekkingu þeirra færustu
Innsæi og dómgreind ráða för; Hjá Maison Wessman hefur reynslan sýnt okkur að merkilegustu afrekin eru unnin með því að leita hins óvænta og sjá möguleika í því ókomna. Hágæða árangur undir leiðsögn þeirra bestu; Við vitum líka að framtíðarsýn er bara byrjunin. Framúrskarandi árangur krefst ástríðu og að treyst sé á færni þeirra sem fremstir eru á sínu sviði. Þess vegna eru vínin okkar framleidd undir handleiðslu hins heimsfræga vínsérfræðings Michel Rolland og teymis af heimsins bestu vínþjónum.
Vínið er gerjað og þroskað í eikartunnum í 7 mánuði, fölgyllt að lit, mjög opið í ilmi af framandi ávöxtum og hvítum blómum ásamt ristuðum og rjómalöguðum nótum. Bragðið er afskaplega í góðu jafnvægi, djarft og fersk og ansi viðarlegt, miklir sítrusávextir sem bara kalla eftir örðum sopa.
Frakkland
RZ Specification Groups
Magn
75cl
Styrkur
13.5%
Bragð
Kröftugt
Sætleiki
Þurrt
Land
Hérað/Svæði
Framleiðandi
Vefsíða
Korktappi