RZ Specification Groups
Árgangur
2021
Magn
75cl
Styrkur
14.5%
Bragð
Meðalfyllt
Sætleiki
Þurrt
Land
Hérað/Svæði
Framleiðandi
Vefsíða
Vörulýsing
Peter Lehmann er ein af goðsögnum Barossa-dalsins og einn af þeim sem átti mikinn þátt í að koma Shiraz-vínum héraðsins á framfæri alþjóðlega. Hann féll frá fyrir nokkrum árum en vínin byggja enn á þrúgum frá þeim rúmlega hundrað vínbændum sem Lehmann byggði upp samninga við í gegnum árin.
Djúpfjólublátt að lit með rauðum brúnum, ilmur af þroskuðum jarðarberjum, hindberjum ásamt flóknu bragðmiklu kryddi, miðlungsfylling, þurrt og mjúkt, þroskuð tannín og Grenache afbrigðin sitja áfram í munni. Vínið var gerjað á hýði í tíu daga og lítið hlutfall af heilum þrúguklösum notað í opnum gerjunarkerum, vínið er svo þroskað á gömlum frösnkum eikartunnum í 12 mánuði.