Peter Lehmann er ein af goðsögnum Barossa-dalsins og einn af þeim sem átti mikinn þátt í að koma Shiraz-vínum héraðsins á framfæri alþjóðlega. Hann féll frá fyrir nokkrum árum en vínin byggja enn á þrúgum frá þeim rúmlega hundrað vínbændum sem Lehmann byggði upp samninga við í gegnum árin.
Strágyllt að lit, ferskjur, nektarrínur ásamt múskat og möndlukryddi, smá eik í bakgrunni, ferskt og þurrt með rjómakenndum sítrónukrem í munni. Gerjun og þroskun á gömlum og nýjum eikartunnum líka partur af vínum í stáltönkum.