Pata Negra er eitt af vörumerkjunum sem vínhúsið Garcia Garrion, sem er meðal risanna á Spáni, framleiðir vín undir og má finna Pata Negra vín frá nokkrum héruðum. Það verður að segjast eins og er að þessi Ribera del Duero-vín frá Pata Negra hafa komið manni ótrúlega á óvart, þetta eru alvöru Ribera-vín á hlægilegu verði fyrir héraðið.
Þetta er traust og flott Ribera-vín, rúbínrautt að lit, flókið og stórt í nefi af rauðum berjaávexti og dökkum kirsuberjum ásamt vott af vanillu. Mjög mjúkt og öflugt í bragði með ristaðri eik, ríkulegum berjaávexti og kryddi, flott bragðfylling og milt eftirbragð.