Pata Negra er eitt af vörumerkjunum sem vínhúsið Garcia Garrion, sem er meðal risanna á Spáni, framleiðir vín undir og má finna Pata Negra vín frá nokkrum héruðum.
Rúbínrautt að lit, meðalfylling, ósætt, fersk sýra, miðlungstannín. Bláber, brómber, fjólur, lyng. Vegan vín.