Hentar vel með
Vörulýsing
Hér er blandað smá af Pedro Ximénes til að gera Sherrýið örlítið sætara, mun minni sæta en í Osborne Golden. Líflegur og ljósrafbrúnn litur, fínlegt og öflugt í nefi af hnetum og möndlum ásamt smá karmellu, epli, eik og þurrkuðum ávöxtum. Létt meðalfylling, hálfsætt og mild sýra. Þetta sherrý er hægt að para með ýmsum mat t.d tærum súpum, hvítu kjöti og blá-og hvítmygluostum, einnig frábært í klaka með sneið af appelsínu.