RZ Specification Groups
Árgangur
2020
Magn
75cl
Styrkur
16.1%
Bragð
Kröftugt
Sætleiki
Þurrt
Land
Hérað/Svæði
Framleiðandi
Vefsíða
Hentar vel með
Vörulýsing
Tilurð Orin Swift Cellars í Napa Kaliforníu nær aftur til ársins 1995, eða frá því að David Swift Phinney tók tilboði vinar síns um að ferðast með honum til Florence á Ítalíu til þekkingarauka. Eftir tíma þar var ekki aftur snúið er varðaði víngerð og framleiðslu. David lauk víngerðarnámi og fékk eftir það tímabundna vinnu við uppskeru hjá Robert Mondavi.
Hann ákvað síðan að stofna sitt eigið vínhús í Napa árið 1998 sem hann nefndi eftir foleldrum sínum Orin Swift Cellars. Orin er miðnafn föður og Swift skírnarnafn móður hans. Með aðeins tvö tonn af Zinfandel og lítið af öðru þrúgutegundum skóp hann vín sem þóttu einstök, jaðar eða bílskúrsvín eins og menn kölluðu eftirtektaverða sprota vínframleiðslu í þá daga. Allt frá upphafi hefur Orin Swift fengið gríðamikla athygli og lof vínrýna fyrir mögnuð gæði og ekki síður einnig fyrir nafngiftir og framsetningu vína fyrirtækisins. David Phinney hafði ekki gert vín úr Zinfandel þrúgunni í átta ár, sem er vísun í nafni á víninu 8 years in the desert.
Að vera strandaður í eyðimörkinni skilur eftir sig margt - hvernig á að komast aftur heim, hvar á að finna mat, vatn og skjól og hugsanir um að lifa af. Í átta ár snemma á tíunda áratugnum var Orin Swift Cellars meinað að búa til nokkur Zinfandel-vín. Frá þrúgunni sem byrjaði allt hjá Orin Swif, gaf „eyðimörkin“ okkur tækifæri til að kanna fjölbreytt úrval þrúguafbrigða Kaliforníu. En um leið og þessi átta ár voru liðin, vorum við komin með áætlun um að heiðra heimili okkar.
Vínið er nánast ógengsætt að lit, opnar sig með þroskuðum hindberjum og brómberjum með vott af svörtum pipar og negull. Eftir öfluga innkomu gefur vínið af sér m.a í bragði, bláber og sætt svört kirsuber meðfram vott af ferskum kryddjurtum eins og timjan og tarragon, langt í endingu, þroskuð tannín með dash-i af ösku og svörtu te-i. Vínið fær 8 mánaða eikarþroskun á frönskum og amerískum tunnum, 63% nýjar tunnur.