Nederburg er eitt hinum sögufrægu vínhúsum Suður-Afríku og var upphaflega stofnað árið 1791. Nederburg-býlið, sem er sannkallað Château er enn á sínum stað í Paarl skammt frá Höfðaborg og vínin frá Nederburg eru með þeim vinsælli frá Suður-Afríku.
Private Collection línan er eingöngu fyrir veitingastaði og fríhafnir, kemur frá afkastamiklum víngörðum, handtínd uppskera snemma að morgni.
Ljóslímónu að lit, ákafur ilmur sítrónugrasi, lime og sítrus með tinnukeim og vott af aspas. Þurrt og meðalfyllt í bragði. Frábært með léttum réttum, sjávarfangi, salötum og tælenskum réttum.