RZ Specification Groups
Árgangur
2017
Magn
75cl
Styrkur
15%
Bragð
Kröftugt
Sætleiki
Þurrt
Land
Hérað/Svæði
Framleiðandi
Vefsíða
Hentar vel með
Vörulýsing
Fyrir ca 20 árum settu Aurelio Montes og aðrir forystumenn Montes-fyrirtækisins sér það markmið að framleiða vín er gæti keppt við bestu vín heims. Eftir margra ára þróunarstarf og undirbúning var árangurinn vínið „M“ kynnt árið 1996. Eitt besta ef ekki hið besta Chile vín er byggist á Bordeaux blöndunni, Cabernet Sauvignon, Merlot og Cabernet Franc og einkennist af hinu besta í víngerð Chile og liggur í stíl á milli Kaliforníu og Bordeaux.
Mjög svo fallega samsett vín með blómlegum undirtóni og þróttmiklum villtum berjum, sólberjum og þroskuðum plómum sem vafinn eru fínlegum tanníum. Eftirbragðið er langt og kraftmikið en vínið þarf sinn tíma í geymslu til að skína. Umhelling er skilyrði núna við þennann árgang.