Aurelio Montes ræktar Chardonnay-þrúgurnar í þetta vín á svæðinu Aconcagua Costa en þar er Kyrrahafið í einungis um 7 kílómetra fjarlægð sem gefur víninu mikinn ferskleika, steinefni og ,,cool-climate" einkenni. Aconcagua Costa fékk stöðu sem DO-víngerðarsvæði fyrir örfáum árum en þarna er m.a. að finna dalina Casablanca og Leyda.
Ljósgyllt að lit, þéttur ilmur af hitabeltisávöxtum, ananas, apríkósur, ferskjur, kantalópumelóna og eplabaka með smjördeigi og þétt sæt sítrusangan með finlegri en léttri eik. Ekta nýjaheims Chardonnay með sínum öflugum ávexti og ristaðri, smjör, vanillu og karmelluhúðaðri eik. Langt og saðsamt vín.