Vínhúsið Montecillo í Rioja á Spánin hefur verið í miklum metum hjá íslenskum neytendum allt frá því að þau komu fyrst á markað hér fyrir tæpum tveimur áratugum. Djúp kirsuberjarautt að lit og rústrauður útí barma.
Djúpur dökkur ávöxtur, þroskuð kirsuber, rifsber, brómber og plóma njóta sín í bland við vanillu, kaffi og tóbakstóna frá eikinni ásamt vott af lakkrís og myntu. Langt í munni, mineralískt, djúpur ávöxturinn og kryddað með þéttum og ferskum tannínum.
Vínið er látið þroskast í eikartunnum í 24 mánuði og minnst 16 mánuði í flösku áður en sett er á markað.