Vínhúsið Montecillo í Rioja á Spánin hefur verið í miklum metum hjá íslenskum neytendum allt frá því að þau komu fyrst á markað hér fyrir tæpum tveimur áratugum.
Múrsteinsrautt að lit, mjög ilmríkur af þroskuðum svörtum skógarberjaávexti, vanillu, vindlatóbaki, kanil, jörð, leður,trufflur, lakkrís og súkkulaði svo eitthvað sé nefnt. Fínlegt, fágað og flókið í munni, þétt og langt elegant eftirbragð með þroskuðum og mildum tannínum.
Vínið er látið þroskast í frönskum og amerískum eikartunnum í 26 mánuði og minnst 36 mánuði í flösku áður en sett er á markað. Gran Reserva vín er gott að umhella þar sem þau geta innhaldið botnfall.