Búrgundarvínin eru franskara en flest það sem franskt er og allir vínáhugamenn ættu að kynna sér þetta merkilega svæði, bæði í hvítum vínum og rauðum. Mercurey er lítið þorp suður af Beaune og flokkast sem Côte Chalonnaise, vínin þaðan eru ekki eins dýr og í Côte-d´Or.
Tær rúbínrauður að lit, létt kryddaður, rauðir ávextir, hindber, kröftugt í bragði og öflug tannín.