Louis M. Martini kom frá Ítalíu til Bandaríkjanna árið 1899, aðeins 12 ára gamall. Hann kom til að vinna með föður sínum en átti sér stærri draum.
Árið 1933 stofnaði hann vínhús í Napa Valley. Hann var einn af fyrstu vínframleiðendunum sem hófu starfsemi eftir bannárin í Bandaríkjunum. Þetta var ekki endilega auðveldasta stundin til að stofna vínhús – en stundum eru bestu vínin búin til af fólki sem sér möguleika þar sem aðrir sjá vandamál.
Martini trúði því að Kalifornía gæti framleitt Cabernet Sauvignon í heimsklassa. Hann lagði mikla áherslu á vínekrur og gæði þrúgunnar.
Sonur hans, Louis P. Martini, hélt áfram arfleifðinni og þróaði vínræktina enn frekar.
Þetta er massívt og mikið vín, dökkt að lit, ilmríkt af svörtum berjaávexti, eik og kryddjurtum. Öflugt og þétt í bragði, plómusulta, sólber og bláber ásamt eikaráhrifum og jólakryddum svona til að styðja við ávöxtin. Kröftug meðalfylling, þroskuð tannín og flott eftirbragð.