RZ Specification Groups
Árgangur
2018
Magn
75cl
Styrkur
15%
Bragð
Kröftugt
Sætleiki
Þurrt
Land
Hérað/Svæði
Framleiðandi
Vefsíða
Hentar vel með
Vörulýsing
Louis M. Martini er sögufrægt vínhús í Kaliforníu, eitt af þeim fyrstu til að gera tilraunir með þrúgur á borð við Cabernet Sauvignon. Þetta Cabernet frá Napa Valley er t.d. að mati Robert Parker og Wine Advocate með bestu Cabernet-kaupunum frá Kaliforníu.
2018 árgangurinn af Napa Cabernet frá Martini er frábærlega vel gert vín, rúbínrauður að lit, ilmur að dökkum þroskuðum berjaávexti, sólber, rifsber og trönuber ásamt reyktum sedrusviði, tóbakslauf og þurrkuðum kryddjurtum. Þétt bragðmikið vín sem eru vel innrömmað í sedrusvið og ristaðri endingu. Vín með alvöru ,,beinagrind" en engu að siður með mildum þroskuðum tannínum. Vínið fer í gegnum 15 mánaða eikarþroskun af miðlungsristuðum tunnum frá Frakklandi, Ungverjalandi og Ameríku. Þetta er ekki eitt af þessum risavöxnu Napa-vínum sem kosta formúur, þetta er eins konar alþýðuútgáfu af toppvínum Napa, einstaklega ljúffengt og flott.