Louis M Martini Monte Rosso Vineyards Gnarly Vine Zinfandel 75 CL
9.999 kr
Vörulýsing
Louis M. Martini er sögufrægt vínhús í Kaliforníu, eitt af þeim fyrstu til að gera tilraunir með þrúgur á borð við Cabernet Sauvignon. Þessi Zinfandel hinsvegar kemur frá hinum víðfræga víngarði Monte Rosso sem er um 400m yfir sjávarmáli uppí hlíðum Maycamas fjallgarðarins og hefur verið í eigu Louis M Martini fjölskyldunar frá árinu 1938. Víngarðurinn er hátt yfir sjávarmáli, nær yfir þokuna, ávallt lítið uppskerumagn, allt handunnið og eingöngu af gömlum vínvið, sumir meira en 125 ára gamlir.
Stór og bleksvart vín að lit, svakalega öflugur ilmur brómberjum,vanillu og pipar ásamt trönberjum, sólberja-og brómberjaböku, þvílik bragðbomba, piparkorn, negul og aðrar kryddjurtir bætast svo við bragðflóruna, frábært jafnvægi, mjúk tannín, langt og saðsamt eftirbragð með vott af vanillu og molassa. Vínið er látið þroskast í 14mánuði í 66% nýjum frönskum eikartunnum, 16% nýjum amerískum og 18% í hlutlausum eikartunnum ásamt flösku þroskun.