201248
Á lager

Levantine de Musar Red 75 cl

201248
Á lager

Levantine de Musar Red 75 cl

Vörulýsing

Levantine (lýsingarorð): „sem tengist austurhluta Miðjarðarhafsins“. Vínið er framleitt úr lífrænt vottuðum vínekrum okkar í vesturhluta Bekaa-dalsins. Árgangurinn 2021 var tekinn upp seint í ágúst og í byrjun september. Þetta er ungt vín úr vínvið sem gaf afar litla uppskeru og því varð framleiðslan lítil og takmörkuð. Veðurfar og uppskeruaðstæður árið 2021 minntu á „gömlu góðu dagana“, þar sem allt gekk samkvæmt áætlun án öfgakenndra veðurskilyrða. Því teljum við að þessi árgangur verði einstaklega fágaður, ilmríkur, með margbrotinni bragðupplifun og mjög góða möguleika til geymslu og þroskunar.

Árgangurinn 2021 er blanda af: Cinsault – 55%, Tempranillo – 35%, Cabernet Sauvignon – 10%. Þrúgurnar voru valdar úr einni og sömu vínekrunni. Tempranillo-uppskeran þetta ár var sérlega fáguð og silkimjúk. Þessi dökka þrúgutegund gaf vín með mikilli dýpt og löngu eftirbragði, meðal annars vegna einstaklega lítillar uppskeru, aðeins 12 hl/ha.

Vínið er ekki látið þroskast á eikartunnum og þrúgurnar voru gerjaðar í steinsteyptum kerum við 27–29°C hita, blöndunin fór fram vorið 2022. Vínið hvíldi síðan í kerunum þar til það var sett á flöskur snemma sumars 2022 og sett á markað vorið 2023. Levantine rauðvín er ósíað og oftast eru flöskunar með botnfalli, er framleitt samkvæmt náttúrulegri og lágmarksíhlutandi hugmyndafræði okkar í víngerð.

Djúpur vínrauður litur með fjólubláum blæ. Ilmur með keim af berjum, plómum, tóbaki og kirsuberjum. Ríkulegur ávöxturm, mjúk tannín og frískandi sýrustig. Fágaður árgangur með ilmríkri og margbrotinni flækju í bragði.

Líbanon
Líbanon
2021
Château Musar

RZ Specification Groups

Magn

75cl

Styrkur

14.5%

Hérað/Svæði

Framleiðandi