RZ Specification Groups
Vörulýsing
Havana Club Añejo 3 años er það romm sem gefur Mojito hið eina sanna Kúbanska bragð. Látinn þroskast á Bourbon tunnum í 3ár og svo síaður, þaðan kemur þessi fölguli litur. Klassískt romm og er lykilþáttur í hressandi Daiquiri kokteil eða hvaða romm koteil sem er.
Strágulur, bjartur og þéttur að lit, sem gefur til kynna aldur rommsins. Öflugur í nefi, marzipan, sítrus, allspice, malað engifer ásamt smá lime og fínlegri eik. Bragðið er hreint og þétt með sítrus, vanillu og eik, smá kryddtónar og sítróna með fínlegum vott af hnetum.