202497
Á lager
Grand Vin Les Verdots Blanc 75 CL
5.899 kr
Korktappi
Má geyma
202497
Á lager
Grand Vin Les Verdots Blanc 75 CL
5.899 kr
Vörulýsing
Verdots-víngarðurinn er staðsettur í Conne-de-Labarde, á landi sem jarðvegur er að mestu úr leir, tinnu og kalksteini. Á 18 hekturum eru hvítu þrúgutegundirnar Sémillon, Sauvignon Blanc og Sauvignon Gris og Muscadelle og á um 26 hekturum eru Merlot, Cabernet Sauvignon, Cabernet Franc og Malbec.
Eitt af aðaleinkennum Vignoble des Verdots sé neðanjarðar öldrunarkjallarinn sem er byggður inn í klett. Hann er staðsettur fyrir ofan á sem rennur neðanjarðar og kallast „Les Verdots“ en áin uppgötvaðist fyrir tilviljun við framkvæmdir á vínkjallaranum. Áin er óaðskiljanlegur hluti af öldrun og þroska vínanna í kjallaranum þar sem hún virkar sem náttúruleg loftkæling. Framleiðslan hjá Vignoble des Verdot er sjálfbær og notkun meindýraeyða er í algjöru lágmarki. Þá hefur verið þróuð þar aðferð við vínræktunina sem virðir umhverfið án stórfelldrar efnafræðilegrar meðferðar. Vignoble des Verdot fylgir starfsaðferðum sem byggir á virðingu og umhyggju fyrir fólki og umhverfinu, eignin hefur nýlega verið endurnýjuð og nútímavædd. Einstakur staður sem samanstendur af frumlegu og nútímalegu móttökuskipulagi, víngerðarkjallara, neðanjarðarkjallara, tveim gestaherbergjum og samkomusal, frábær staður til að heimsækja á miðjum vínekrum og smakka á Bergerac vínum. Verdots vínin eru sannkölluð sprenging ilms og efna, fíngerð, fín og flókin.
Grand Vin er hannað fyrir vínunnendur, gyllt að lit, glæsilegur og flókinn í nefi með keim af framandi ávöxtum og saffran, fíngerður en samt kröftugur í bragði, smá viður og langt árómatísk eftirbragð. Þrúgur; Sauvignon Blanc, Sauvignon Gris, Semillon og Muscadelle.
Frakkland
RZ Specification Groups
Árgangur
2021
Magn
75cl
Styrkur
13.5%
Bragð
Kröftugt
Sætleiki
Þurrt
Land
Hérað/Svæði
Framleiðandi
Vefsíða
Korktappi
Má geyma
Vörulýsing