205036
Fá eintök eftir
Graham´s Tawny 20 ára 450 CL
53.999 kr



205036
Fá eintök eftir
Graham´s Tawny 20 ára 450 CL
53.999 kr
Vörulýsing
Eftir því sem vínið er geymt lengur á tunnu breytir það um lit, rauði liturinn tekur á sig brúna tóna og ávöxturinn víkur fyrir hnetum og möndlum. Þessi portvín eru kölluð Tawny með vísun í litarhátt þeirra. Skilyrði fyrir því að portvín megi skilgreina sem Tawny er að það hafi einungis verið látið þroskast á eikartunnum. Tawny portvín eru uppáhald Portúgalana sjálfra, elegant og þægilega kryddað upplagt með dessertum og kökum með hnetum og marsipani.
Rafbrúnn með gylltum "tawny" lit, framúrskarandi í ilmi af hnetum og karmelu ásamt bragð af yndislegum þroskuðum kirsuberjum, ávaxtaköku, toffí, mjólkursúkkulaði og vott af appelsínuberki, ríkulegt í bragði, seiðandi sætt og mjúkt, frábært jafnvægi í löngu og fínlegu eftirbragði.
Douro-dalurinn í norðurhluta Portúgal er með fegurstu víngerðarhéruðum heims. Fljótið Douro hlykkjast um dalinn á lokasprett sínum að Atlantshafi og í bröttum hlíðunum berst vínviðurinn í grýttum jarðveginum á manngerðum syllum. Douro er auðvitað þekktast fyrir að vera hérað hinna styrktu vína, portvínanna, frægustu vína Portúgal.
Hentar vel með

