RZ Specification Groups
Árgangur
2023
Magn
75cl
Styrkur
13%
Bragð
Létt
Sætleiki
Þurrt
Land
Hérað/Svæði
Framleiðandi
Vefsíða
Hentar vel með
Vörulýsing
Það er ekki skrýtið að Gérard Bertrand geri nokkur góð rósavín, enda er þau drukkin frá morgni til kvölds, á heimaslóðum hans í Languedoc strax og meðalhitinn kemst yfir 20°C Rósavínin hans frá Chateau Sauvageonne eru t.d með þeim dýrustu og bestu sem gerð eru í heiminum í dag. Þetta vín er reyndar meira í ætt við „Gráu“ vínin sem gerð eru við ósa Rónarfljótsins þar sem það rennur á sendnu flatlendinu við Miðjarðarhafið enda þýðir nafnið„Gris“ einmitt „grátt“. Þrúgan er líka sérstök sem í þetta vín er notað og er bleikt afbrigði af Grenache Noir og kallast auðvitað Grenache Gris.
Skemmtilegt rósavín, vínið hefur daufa bleik-gráa slikju (sem Frakkar kalla stundum laukhýði) . Ilmur og bragð af rauðum berjaávexti, kirsuber, jarðaber, títuber, rifsber, nektarínur, melóna, fíkjur og smá kókos og örlítil kolsýra, það er þurrt og sýruríkt með töluverða lengd, frábært jafnvægi og ferskleika. Mjög gott eitt og sér á sólríkum eftirmiðdegi en líka fínt með skelfiski, léttari fiskréttum, salötum og sushi.