RZ Specification Groups
Árgangur
2023
Magn
75cl
Styrkur
13%
Bragð
Meðalfyllt
Sætleiki
Þurrt
Land
Hérað/Svæði
Framleiðandi
Vefsíða
Hentar vel með
Vörulýsing
Côte Des Roses er auðvitað ákaflega viðeigandi nafn á rósavíni en þetta vín úr smiðju frá meistaranum Gérard Bertrand kemur af ekrum við Miðjarðarhafsströndina í Narbonne í Suður-Frakklandi. Það eru þrjár helstu þrúgur svæðisins í blöndunni, Grenache, Syrah og Cinsault.
Flaskan vekur strax athygli, hún er rósalöguð, flöskubotninn eins og rós í blóma og með glertappa.
Vínið er laxableikt, út í appelsínugult, sætkennt og sumarlegt í nefi með angan af hindberjum, jarðaberjum, ferskju, melónu, sítrus, greip og hvítum blómum, já það eru rósir þarna í nefinu og líka vottur af jasmín. Í munni þétt, ferskt með flottum berjaávexti. Afar vel heppnað rósavín sem gengur vel eitt og sér sem dásamlegur sumardrykkur en það er líka fínt með skelfiski, sushi, ljósu kjöti og salötum.