Gérard Bertrand An 1130-Cité de Carcassonne Chardonnay 75 CL
2.799 kr
Vörulýsing
Vínið sem hér um ræðir ber nafnið Cite de Carcassonne “An 1130” og er nefnt eftir samnefndum bæ í Occitaníu. Á þessu svæði hefur verið byggð allt frá lokum steinaldar, og þarna lágu verslunarleiðir milli Atlantshafs og Miðjarðarhafs. Rómverjar áttuðu sig strax á mikilvægi þessarar hæðar og höfðu þar aðsetur allt þar til Rómaveldi leið undir lok. Fyrsta virkið umhverfis þorpið var byggt árið 1130. Bærinn er nú á heimsminjaskrá Unesco.
Vínekrunar njóta bæði Atlanshafs og Miðjarðarhafsáhrifa sem bæta við ferskleika og ávaxtarilm vínsins. Bjartur strágulur litur, í nefi ilmar af nektarínur, eplum, sítrus og fallegum framandi tónum, þurrt, ferskt, steinefni.