RZ Specification Groups
Árgangur
2021
Magn
75cl
Styrkur
14%
Bragð
Kröftugt
Sætleiki
Þurrt
Land
Hérað/Svæði
Framleiðandi
Vefsíða
Vörulýsing
Emilio Moro sem hefur aðsetur í smáþorpinu Pesquera er eitt af helstu vínhúsunum í Ribera del Duero, einhverju besta rauðvínshéraði Spánverja. Vínþrúgan í Ribera heitir Tinto Fino og er í raun sú sama og víða annars staðar, t.d. í Rioja, er nefnd Tempranillo.
Djúp rúbínrautt að lit, ilmríkt af þroskuðum dökkum berjaávexti, bláber, kirsuber, krækiber, plómur ásamt talsverði eik, vanillu og sedrusviði. Kröftugt og kjötmikið í munni, kryddað og þétt öflug tannín í löngu og bragðmiklu eftirbragði, vínið hefur engu að síður fína mýkt og er vel tilbúið til neyslu. Umhellið. Vínið fær 12 mánaða þroskun í amerískum og frönskum eikartunnum.