Hentar vel með
Vörulýsing
El Coto hefur á nokkrum áratugum skipað sér sess sem eitt af „klassísku“ spænsku Rioja-vínunum og þetta er það vínhús sem selur hvað mest af Rioja-vínum á Spáni. Vínið er unnið úr Viura vínþrúgunni að meirihluta ásamt Verdejo og Sauvignon Blanc og kemur frá Rioja Alta svæðinu og Finca Carbonera sem er hæðsti víngarður í DOC Rioja.
Vínið er óeikað og hefur fölsítrónugulan lit með grænum glefsum, nefið einkennist af blómaangan og bragð af ferskum grænum eplum, þroskaðar perur, sæt melóna og sítrusávextir. Ferskt, létt og aðgengilegt vín.