Suður-afrísku vínin frá Drostdy Hof hafa notið mikilla vinsælda, ekki síst í þriggja lítra kössum og kassavín frá fyrirtækinu hefur til að mynda verið valið besta kassavínið á markaðnum af sænskum víntímaritum.
Ljós-límónugrænt með ferskna angan af suðrænum ávöxtum, svo sem melónum, perum, sítrus og grænum eplum ásamt góðum kryddkeim sem kemur vel fram í bragði. Vínið er frekar þurrt, bjart og með góðan ferskleika og mýkt. Þrúgan Chenin Blanc er frönsk að uppruna og er þar fyrst og fremst ræktuð í héraðinu Loire, m.a í Vouvray og Anjou. Það eru hins vegar líklegra að neytendur rekist á hana í Suður-Afrískri útgáfu. Chenin Blanc, sem einnig er kölluð Steen í Suður-Afríku, er útbreiddasta þrúgan þar í landi.
Fæst einnig í 75cl flösku.