202046
Á lager

Domaine Marie Vin Jaune Arbois 62 cl

202046
Á lager

Domaine Marie Vin Jaune Arbois 62 cl

Vörulýsing

Vin Jaune er eitt sérstæðasta vín Frakklands, frá Jura-héraði í austurhluta landsins. Þetta einstaka hvítvín er gert úr Savagnin-þrúgunni og þroskað í eikartunnum í að minnsta kosti sex ár og þrjá mánuði, þar sem sérstakt gerlag lag á yfirborði vínsins mótar hið einstaka bragð og ilm.

Vínið hefur djúpan, gylltan lit og kraftmikinn, margbreytilegan ilm þar sem mætast valhnetur, þurrkaðir ávextir, epli, karrí og saffran. Í munni er það þurrt, ferskt og kröftugt, með mikla dýpt, ríkulegt bragð og langvarandi, fágaðan endi.

Vin Jaune er vín fyrir þá sem vilja kanna nýjar vínhæðir og upplifa einstaka hefð franskrar víngerðar. Það nýtur sín sérstaklega vel með Comté-osti, svepparéttum, sniglum, hvítu kjöti og fiski í rjómakenndri sósu.

Einstakt vín með mikla sérstöðu og afar gott geymsluþol.

Þrúgur

Savagnin
Frakkland
Frakkland
2018
Domaine Marie & Fils

RZ Specification Groups

Magn

62cl

Styrkur

14.5%

Hérað/Svæði