Corton Charlemagne Grand Cru. Bouchard Ainé & Fils 75 CL
46.999 kr
Vörulýsing
Vínekran eða hæðin Corton Charlemagne er nefnd í höfuðið á hinum heilaga rómverska keisara Charlemagne sem átti hæðina en gaf mest af henni til klaustursins St. Andoche í Saulieu seint á 8 öld.
Þykkur fölgylltur litur, flókið, ilmríkt og lokkandi af hezlihnetum, ferskum valhnetum og bökuðum eplum, vottur af sítrus og ananas ásamt steinefnum. Í munni flókið og kraftmikið með mikla fyllingu og frábært jafnvægi milli sætu og sýru. Kanill og hunang birtist svo í víninu þegar það verður eldra. Gerjað og þroskað í eikartunnum með botnfalli í 14-16 mánuði.