Château Pibran er vissulega ekki eitt af “stóru” húsunum í Pauillac í Grand Cru-flokkuninni, en Tour Pibran er “second” vín vínhússins. Ekrur vínhússins eru hins vegar á besta stað og umluktar ekrum nokkurra “stóru” vínhúsanna, nefnilega Mouton-Rothschild, Pontet-Canet og Lynch Bages. Þegar við bætist að það er Jean-Michel Casez hjá Lynch Bages sem stjórnar vínhúsinu og teymið frá topphúsinu Pichon-Longueville sem sér um víngerð og verðið langt undir verði þekktari vínhúsa á svæðinu er ljóst að þetta eru vín sem vert er að gefa gaum.
Pibran er klassískt Pauillac vín, þétt meðalfylling, tignarlegt og rismikið, örlítið mineralískt með dimmum skógarberjaávexti, laufkrydd, sveit, kaffi, létt reykt eik. Vel uppbyggt, þétt tannín en þó nú þegar aðgengilegt og fínt. Þetta er vín fyrir hreindýrið eða nautalundina. 18 mánaða eikarþroskun, 50% nýjar og 50% í eins árs gömlum tunnum.