202499
Á lager
Château Les Tours des Verdots Blanc 75 CL
3.999 kr
Korktappi
202499
Á lager
Château Les Tours des Verdots Blanc 75 CL
3.999 kr
Vörulýsing
Verdots-víngarðurinn er staðsettur í Conne-de-Labarde, á landi sem jarðvegur er að mestu úr leir, tinnu og kalksteini. Á 18 hekturum eru hvítu þrúgutegundirnar Sémillon, Sauvignon Blanc og Sauvignon Gris og Muscadelle og á um 26 hekturum eru Merlot, Cabernet Sauvignon, Cabernet Franc og Malbec.
Eitt af aðaleinkennum Vignoble des Verdots sé neðanjarðar öldrunarkjallarinn sem er byggður inn í klett. Hann er staðsettur fyrir ofan á sem rennur neðanjarðar og kallast „Les Verdots“ en áin uppgötvaðist fyrir tilviljun við framkvæmdir á vínkjallaranum. Áin er óaðskiljanlegur hluti af öldrun og þroska vínanna í kjallaranum þar sem hún virkar sem náttúruleg loftkæling. Framleiðslan hjá Vignoble des Verdot er sjálfbær og notkun meindýraeyða er í algjöru lágmarki. Þá hefur verið þróuð þar aðferð við vínræktunina sem virðir umhverfið án stórfelldrar efnafræðilegrar meðferðar. Vignoble des Verdot fylgir starfsaðferðum sem byggir á virðingu og umhyggju fyrir fólki og umhverfinu, eignin hefur nýlega verið endurnýjuð og nútímavædd. Einstakur staður sem samanstendur af frumlegu og nútímalegu móttökuskipulagi, víngerðarkjallara, neðanjarðarkjallara, tveim gestaherbergjum og samkomusal, frábær staður til að heimsækja á miðjum vínekrum og smakka á Bergerac vínum. Verdots vínin eru sannkölluð sprenging ilms og efna, fíngerð, fín og flókin.
Bjartur fölgylltur litur, heillandi nef með arómatískri tjáningju, magnólíu-blómum, ferskjur og sítrusávextir eins og greipaldin. Sauvignon þrúgurnar koma með ferskleika og glæsileika, Muscadelle og Semillon veita fyllingu, jafnvægi og arómatísk ilm og brögð. Þrúgur; Sauvignon Blanc, Sauvignon Gris, Semillon og Muscadelle.
Frakkland
RZ Specification Groups
Árgangur
2022
Magn
75cl
Styrkur
15%
Bragð
Meðalfyllt
Sætleiki
Þurrt
Land
Hérað/Svæði
Framleiðandi
Vefsíða
Korktappi
Hentar vel með
Vörulýsing