Chablis Grand Cru ,,Bougros". La Chablisienne 75 CL
8.599 kr
Vörulýsing
Vínsamlagið Chablisienne er stærsti framleiðandi Chablis-vína. Samlagið var sett á laggirnar árið 1923 af konum þar sem allir karlarnir voru í WWW1, og í dag eiga um 300 vínræktendur aðild að því. Ræður samlagið yfir um 25% af heildarræktarsvæði Chablis og framleiðir allt frá Petit Chablis og upp í Grand Cru. Hin fræga vínkeppni “ International Wine Challenge” útnefndi Estelle ROY aðalvíngerðarmaður La Chablisienne besta hvítvínsgerðarmann ársins 2024 í heiminum.
Hreinn og tær gylltur litur, svoldið feimið í fyrstu í angan en við öndum opnar það sig svo um munar, kryddaðir tónar i fyrstu ásamt þroskuðum ávexti, perur, ananas og sítrus, þægileg ristuð eik og rjómakennd vanilla. Í munni er það öflugt af ávexti og steinefnum i löngu eftirbragði.