Nýtt
207087
Á lager
Camus Ile de Ré Fine Island 70 CL


Nýtt
207087
Á lager
Camus Ile de Ré Fine Island 70 CL
Vörulýsing
Camus Île de Ré Fine Island er sérstakt koníak frá franska koníakshúsinu Camus sem sækir sérstöðu sína til eyjunnar Île de Ré, undan vesturströnd Frakklands við Atlantshafið. Þar mótast karakterinn af sjávarlofti, strandloftslagi og nálægð við hafið, sem gefur koníakinu öðruvísi yfirbragð en mörgum hefðbundnum koníökum.
Ferskir sítrusávextir, þroskuð pera, léttur blómakeimur og mildir viðartónar í nefi. Bragð, ávaxtaríkt og ferskt, með keim af þurrkuðum ávöxtum, kryddi og fíngerðum eikartónum. Mjúk áferð en karakterrík, með þurrari og örlítið saltkenndum blæ sem minnir á uppruna þess við Atlantshafið. Eftirbragð hlýtt og kryddkennt, með ferskum sjávarblæ og góðri lengd.
Camus Île de Ré Fine Island er óvenjulegt koníak með karakter frá Atlantshafinu. Ferskir ávextir, mjúkir möndlutónar og steinefnakenndur sjávarblær skapa sérstaka heild sem sker sig úr hefðbundnum koníökum. Njóttu þess eins og það er, með klaka eða sem spennandi grunn í kokteil, sérstaklega áhugavert með ostrum, sjávarréttum eða léttum eftirréttum

