RZ Specification Groups
Vörulýsing
Framburður: Bú-na-ha-venn Eimingarhúsið var stofnað á eyjunni Islay árið 1883 er það staðsett á norð-austurenda eyjarinnar sem er mjög afskertur. Bunnahabhain þýðir í raun ‘’ár ós’’ enda er húsið reist nánast við ós árinnar Margadale Bunnahabhain er þekkt sem hið milda og fágaða vískí eyjarinnar enda eina húsið þar sem notast eingöngu við hreint lindarvatn.
Lykiltegundir Bunnahabhain vískí er 12, 18 og 25 ára af eikartunnum þegar þau fara á markað. Öll eru þau náttúrleg að lit og ekki kald síað eða un-chillfiltered til að auka bragð og karakter. Bunnahabhain er nánast áskrifandi að helstu verðlaunum sem í boði eru í helstu viskíkeppnum veraldar. Mest selda útgáfan er Bunnahabhain 12 ára og er 46.3% að styrkleika.
Rafgult að lit, í nefi ferskt og sætt, sjávarþang og sumarblóm. Í munni mjúkt og fágað, sérrí og hneta með örlítið sæta miðju enn kröftugum enda þar sem einnig má greina reyktan mókenndan keim, kaffi, þang og smá seltu.