Finndu vín eða framleiðanda
Hafðu samband
Verðlisti
Freyðivín eru framleidd víða um Frakkland og í Búrgund kallast þau Crémant du Bourgogne. Bailly-Lapierre er framleiðandi í þorpinu Bailly í norðurhluta héraðsins. Þetta er nágrannasveit Champagne og þrúgurnar því ekki bara þær sömu og ræktaðar eru í Champagne (það er Pinot Noir og Chardonnay) heldur aðstæður allar einnig mjög svipaðar. Þar sem sama aðferð er notuð við gerð freyðivínsins og í Champagne verður útkoman oft mjög góð.
Laxableikt að lit, þétt og falleg freyðing, þurrt, fínt sýrustig, mikil rauður ávöxtur, berjabaka. Mjög ferskt og fínlegt freyðivín.
Skelfiski, ljósu kjöti, smáréttum, sem fordrykkur og eitt og sér.
2.799kr.