201020
Á lager

Badia A Passignano Chianti Classico Gran Selezione 75 CL

Korktappi
  Korktappi  
Má geyma
  Má geyma  
Image
Image
Image
Image
201020
Á lager

Badia A Passignano Chianti Classico Gran Selezione 75 CL

Vörulýsing

Glæsilegt og fágað Chianti Classico Gran Selezione frá hinu virta vínhúsi Marchesi Antinori. Badia a Passignano er framleitt úr 100% Sangiovese af samnefndum ekrum í hjarta Chianti Classico, þar sem kalkríkur jarðvegur og hæð í kringum 300 metra gefa víninu mikla ferskleika og karakter. Vínið þroskast í eik og fær síðan frekari flöskuþroskun áður en það kemur á markað.

Í nefi má finna þroskuð kirsuber, sólber og rauða ávexti ásamt fíngerðum blóma- og kryddtónum. Í munni er vínið kraftmikið en fágað, með ferskri sýru, mjúkum og vel samþættum tannínum og löngu, safaríku eftirbragði. Eik, ávöxtur og jarðbundinn karakter mynda fallegt jafnvægi.

Þetta er vín fyrir þá sem vilja sjá meiri dýpt, þroska og uppbyggingu í Sangiovese – frábært með grilluðu eða hægelduðu nautakjöti, villibráð, pasta með kjötsósu og þroskuðum ítölskum ostum.

Klaustrið Badia a Passignano

Badia a Passignano er eitt af sögufrægustu klaustrum Chianti Classico og stendur á hæðunum fyrir ofan Sambuca Val di Pesa, aðeins um 3 km frá Tignanello-eign Antinori. Klaustrið á sér meira en 1.000 ára sögu og elstu heimildir þess eru frá árinu 891. Árið 1049 komst það undir Vallombrosana-regluna, sem var umbótahreyfing innan Benediktsreglunnar og lögðu munkarnir mikla áherslu á víngerð og skógrækt.

Eitt það áhugaverðasta er að miðaldakjallarar frá 10. öld eru enn varðveittir undir klaustrinu. Þar eru vín enn þroskuð í dag. Klaustrið tengist því vínræktarsögu svæðisins mjög sterkum böndum – og í raun má segja að vín hafi verið hluti af lífi Badia a Passignano í meira en þúsund ár.

Skemmtileg söguleg tenging er einnig að Galileo Galilei dvaldi í klaustrinu á árunum 1587–1588, þar sem hann starfaði sem stærðfræðikennari.

Þess vegna er Badia a Passignano Gran Selezione meira en bara Chianti Classico – vínið er bókstaflega framleitt úr sömu sögulegu landsvæði og þroskað í kjallara undir klaustri sem hefur staðið þar í yfir þúsund ár.

Þrúgur

Sangiovese
Ítalía
Ítalía
2021
Antinori

RZ Specification Groups

Magn

75cl

Styrkur

14.5%

Bragð

Kröftugt

Sætleiki

Þurrt

Hérað/Svæði

Framleiðandi

Vefsíða

Korktappi
  Korktappi  
Má geyma
  Má geyma