RZ Specification Groups
Árgangur
2018
Magn
75cl
Styrkur
12.5%
Bragð
Meðalfyllt
Sætleiki
Millisætt
Land
Hérað/Svæði
Framleiðandi
Vefsíða
Hentar vel með
Vörulýsing
Hvíta Apothic-vínið frá Kaliforníu er að mörgu leyti steypt í sama mót og það rauða. Þetta er tiltölulega óvenjuleg blanda af þrúgum, ljúffeng blanda af Chardonnay, Riesling, Pinot Grigio og Viognier og rétt eins og hið rauða er þetta tæknilega vel gert vín, með áherslu á kraft, mikinn ávöxt og töluverða sætu.
Vínið er ljóssítrónugult að lit með léttri meðalfyllingu, í nefi er sætur, suðrænn og sultaður ávöxtur, sæt hvít ber, apríkósur, ferskja og múskat, sætt í munni og þykkt. Þetta er tæknilega vel gert vín fyrir þá sem vilja vínin ekki of þurr. Hins vegar líklega í sætara lagi fyrir þá sem eru vanir þurrari vínum.