Nýtt
201884
Fá eintök eftir

Quinta Da Fonte Souto Tinto 75 CL

4.199 kr

Sjálfbært
  Sjálfbært  
Nýtt
201884
Fá eintök eftir

Quinta Da Fonte Souto Tinto 75 CL

4.199 kr

Vörulýsing

Vínhúsið Quinta Da Fonte Souto er í eigu hinnar frægu Symington fjölskyldu sem er með höfuðstöðvar sínar í Douro dalnum og borginni Porto – Vila Nova de Gaia í norðurhluta Portúgal.

Þau eiga 28 vínbúgarða og mörg heimsþekkt portvínshús eins og t.d. Graham´s, Cockburn´s, Dow´s og Warre´s. Einnig framleiða þau mögnuð léttvín í Douro sem koma frá nokkrum Quinta´s í eigu fjölskyldunar á Douro Superior svæðinu. Frægast þeirra er án efa Chryseia P+S frá Quinta de Roriz sem er sameign Symington og hinnar frönsku Prats fjölskyldu.

Sumarið 2017 keypti Symington sitt fyrsta vínræktarsvæði utan Douro, 207 hektarar landareign í Alentejo sem er mun sunnar í Portúgal. Eignin er í hlíðum São Mamede fjallana í Portalegre í norð-austurhluta Alentejo nálægt landamærum Spánar. Eignin er um 500 metrum yfir sjávarmáli og því bæði kaldara og rakara enn á Alentejo sléttunni, sem er að jafnaði bæði þurrt og heitt. Jarðvegurinn granít grýttur og því snauðari enn víðast annarstaðar. Í dag eru rúmlega 40 hektarar nýttir undir vínrækt og um 100 hektarar eignarinnar umlykjandi vínræktina er skóglendi, kork og kastaníu tré.  

Dökkt og djúpt á lit, ilmur af furuskógi með keim af trjákvoða, furu nálar, rauð og dökk ber. Þétt og gjöfull ávaxtakarfa í munni, þroskuð brómber og plóma ásamt votti af lakkrís og eikarvottur. Gott jafnvægi milla allra þátta, fínkornuð tannín, fersk sýra og gott eftirbragð.  8 mánaðar eikarþroskun í notuðum tunnum. Þrúgur: Syrah 40%, Alicante Bouschet 30%, Alfrocheiro 20% og 10% eldri vínviður. 

Portúgal
Portúgal
Quinta Da Fonte Souto

RZ Specification Groups

Árgangur

2018

Magn

75cl

Styrkur

14%

Bragð

Meðalfyllt

Sætleiki

Þurrt

Hérað/Svæði

Sjálfbært
  Sjálfbært  
Vörulýsing

Vínhúsið Quinta Da Fonte Souto er í eigu hinnar frægu Symington fjölskyldu sem er með höfuðstöðvar sínar í Douro dalnum og borginni Porto – Vila Nova de Gaia í norðurhluta Portúgal. Þau eiga 28 vínbúgarða og mörg heimsþekkt portvínshús eins og t.d. Graham´s, Cockburn´s, Dow´s og Warre´s. Einnig framleiða þau mögnuð léttvín í Douro sem koma frá nokkrum Quinta´s í eigu fjölskyldunar á Douro Superior svæðinu. Frægast þeirra er án efa Chryseia P+S frá Quinta de Roriz sem er sameign Symington og hinnar frönsku Prats fjölskyldu.